Könnun

Hversu mikið hlakkaru til uppskeruhátíðar KfHof á skalanum 9-13 þar sem 11 er mest

Auglýsing

Atburðarteljari

Afmælis dagbókin

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

BOLTI

02. september 2009 klukkan 12:49
Bolti í dag á BECO-velli kl. 17:30. láta vita með mætingu fyrir kl 15:00. Ef BECO er upptekinn þá er það Garðabær.

Óskar
bitur dagsins
Ritning | 19 athugasemdir

Boltinn í gær

01. september 2009 klukkan 16:18
KfHof hélt sína fyrsta æfingu í langan tíma í gær. Gaman var að sjá hve vel KfHof menn koma undan sumri og mátti oft á tíðum sjá einstök tilþrif. Þónokkrar umræður voru um "bjórpott" þessa seasons og virtust menn almennt sáttir við ákveðna fjárhæð fyrir hvert skot yfir og svo yrði farið út að borða. Allt er þetta samt opið ennþá.

Ég minnist þess að hafa átt eitt skot yfir í gær. Aðrir sem mættu eru vinsamlegast beðnir um að skrá sín skot.

PS. lið B vann og var ég valinn langbesti leikmaður gærdagsins.

Óskar
bitur dagsins
Ritning | 7 athugasemdir

BOLTI

31. ágúst 2009 klukkan 09:44
Bolti í Garðabænum í dag kl 17:45. Vinsamlegast láta vita með mætingu fyrir kl. 15

Óskar
bitur dagsins
Tónlist | 17 athugasemdir

Bolti í dag í Garðabæ kl 17.45

20. ágúst 2009 klukkan 12:41
Bolti í Garðabænum í dag kl 17:45. Vinsamlegast láta vita með mætingu fyrir kl. 16.

Óskar
bitur dagsins
Tónlist | 11 athugasemdir

Bolti

14. júlí 2009 klukkan 07:27

Það er bolti í dag kl 16 á Åsebøen velli í Kopervik.
Tilkynnið þátttöku fyrir kl 15.

Kv.
Sævar (sem mætir)

bitur dagsins
3 athugasemdir

Bolti í dag í Garðabæ kl 17.45

11. júní 2009 klukkan 10:02
Er þá ekki um að gera að rífa sig upp af rassgatinu eftir lokahófið góða?

Bolti í dag.

Vinsamlegast láta vita fyrir kl 15.00

Daníel og Þórarinn (sem mæta báðir)
bitur dagsins
27 athugasemdir

BOLTI

02. júní 2009 klukkan 09:30
Bolti í Garðabæ kl. 17:45, tilkynna mætingu fyrir kl. 15:00.

Óskar
bitur dagsins
Sögur | 8 athugasemdir

Endaveistlu bolti í dag kl 17:30 í Gbæ

29. maí 2009 klukkan 11:25
Tilkynnið mætingu í bolta fyrir kl. 15:00

SJS
bitur dagsins
29 athugasemdir

Lokahóf KfHof - taka 2

28. maí 2009 klukkan 16:18
Skipulagsnefndin er búin að taka ákvörðun sem hún vonast til að allir séu sáttir með. Út frá síðasta bloggi komu margar skemmtilegar skoðanir fram og margt sem þarf að huga af þegar jafn miklir fávitar koma saman og eru í KfHof.

Dagskrá lokahófsins er eftirfarandi:

Bolti í Garðabæ kl 17.30.

Að bolta loknum verður bjórskuldari NAD látinn taka út sína refsingu og rassaður! Nú getur hver og einn farið að æfa miðið því tilefnið er geigvænlegt.

Eftir rassið verður farið í sund í Laugardalslaug.

Eftir sundið verður farið í miðbæ Reykjavíkur og borðað á American style.

Eftir American style verður farið upp í Skipholt 50F og haldin gleði eins lengi og menn geta. Verðlaunaafhending o.fl. o.fl.

Þessi dagskrá býður ekki upp á Lokahófssjóð sem slíkan.

Þessi dagskrá refsar bjórskuldara nad og bitnar ekki á þeim sem ekki drekka þetta kvöld. En þeir eru 3-5 af öllum fjöldanum.

Hverjum og einum er frjálst að koma með eins mikinn bjór og þeir vilja í Skipholtið og einnig er hægt að koma með bland þar sem nóg er til af víni í skápnum.

Það eru nokkur atriði sem ber að hafa í huga sem mig langar að kasta upp (ég skrifaði viljandi kasta upp): Getur Óskar komið með Play station og Pes?

Geta þeir Ásgeir, Margeir og Þórarinn verið dræverar á morgun? Bara hugmynd, en það væri gaman ef hægt væri að smala fjöldanum sem mætir í þessa 3 bíla og jafnvel fengið sér bjór í boltanum bara strax. Ég skil vel ef þetta fær ekki góðan hljómgrunn, en mig langaði samt að spyrja.

Hvernig líst mönnum á þetta?

Daníel Geir

og smá Sævar

PS. Melda sig takk.
bitur dagsins
29 athugasemdir

Lokahóf KfHof

27. maí 2009 klukkan 15:15
Skipulagsnefnd lokahófs KfHofs hefur unnið mikið og ödult starf í að skipuleggja lokahóf KfHof. Fjölmargir fundir hafa verið haldnir og er niðurstaða nefndarinnar þessi:

Föstudaginn 29. maí verður lokahóf KfHof haldið. Félagsmenn hittast við Flataskóla í Garðabæ kl 17.30 og spila fótbolta.

Að því loknu verður farið í sund í Laugardalslaug. Þar verður létt körfuboltakeppni, póskeppni á bakkanum og keppt í dýfingum með atrennu.

Eftir sundið verður farið niður í bæ á American style. Þar sem KfHof boltinn er oft eins og amerískur fótbolti að þá kom enginn annar staður til greina.

Að því loknu verður farið í heimahús, drukkið bjór, viðurkenningar veittar, drukkið bjór, farið jafnvel í pes, drukkið bjór og minningarbók um fyrsta starfsár KfHof verður skrifuð.

Vandasamt hefur verið fyrir nefndina að finna þennan samastað okkar eftir stílinn og metur nefndin að þrír staðir komi til greina:

a) Heima hjá Þórarni. Kostir margir s.s. pes tölva á staðnum, ágætlega stórt rými o.s.frv. Gallar: Fáránlega langt í burtu.

b) Heima hjá Daníel. Kostir: Á besta stað í bænum. Námsmannablokk með umburðarlyndi gagnvart hávaða. Gallar: Mjög þröngt húsnæði. Engin pestölva. Veikindi hafa verið síðustu daga og vill Daníel ekki að partíið verði háð þátttöku sinni.

c) Heima hjá Óskari. Kostir: Á besta stað í bænum. Mikið umburðarlyndi nágranna. Stórt og gott rými. Pes tölva og nýjustu leikirnir á staðnum. Gallar: Engir.

Það er því tillaga nefndar að þetta verði haldið heima hjá Óskari ef það henti honum. Ef ekki þá verða kostir a og b ræddir betur.

Nú getur hver og einn farið að spá í skemmtiatriðum, leikjum o.þ.h. fyrir þetta magnaða lokahóf!

Gott að menn meldi sig hérna fyrir neðan svo við vitum hvað þetta verður stór hópur.

Hvað finnst ykkur um þetta?

F.h. lokahófsnefndar,

Daníel Geir skemmtanastjóri og Sævar Jökull veislustjóri
bitur dagsins
66 athugasemdir