07. febrúar 2008 klukkan 16:27
Sælir Nadarar .... eða forsetar....
Þar sem ég hef verið að lenda í ýmsu veseni með þetta vefkerfi, m.a. með að senda inn myndir o.þ.h í fréttir, þá datt mér í hug að bjóða upp á annan möguleika,
www.forsetar.com.
Þar með geta allir verið forsetar.
Í þessu vefkerfi er fréttakerfi, myndaalbúm, kannanir o.m.fl. Með þessu skrifa allir undir nafni og geta einungis tekið þátt einu sinni í hverri könnun.
Þið getið skráð ykkur með því að ýta á "Register" efst í hægra horni, þar með fáið þið aðgang á síðuna og getið prófað þetta.
Þetta er bara annar valmöguleiki, þið segið bara til hvort þetta sé eitthvað sem áhugi er á.
Bestu kveðjur,
Margeir Örn Óskarsson
bitur dagsins
07. febrúar 2008 klukkan 13:19
Þar sem að tillögum kosningaeftirlitsmanns er ekki fylgt, þá sé ég ekki þörf fyrir mig í þessum félagsskap og segi mínu sæti lausu. Megi ykkur ganga allt í haginn.
ÓS
bitur dagsins
07. febrúar 2008 klukkan 12:28
Ég legg til að allar pælingar um forsetavald, alræðisvald sem og öll önnur völd verði lagðar niður hið snarasta. Þessi hugmynd er ekki til að bæta þessa síðu né félagskapinn á neinn hátt og því engin þörf á slíkum titlum.
Verði þetta samþykkt legg ég til að að Sævari og Ásgeiri verði boðin innganga á ný og allir geti þar með farið að rífast yfir einhverju öðru.
Verði þessi tillaga hins vegar ekki samþykkt mun ég að öllum líkindum einnig segja skilið við síðu þessa.
Virðingafyllst,
Margeir Örn
bitur dagsins
07. febrúar 2008 klukkan 11:19
í kjölfar þeirra lygasagna og ásakana um að ég sé að stunda skemmdarverk á síðuni og hópnum í held sinni, þá hætti ég hér með á annars þessari ágætu síðu. Þessar ásakanir eru gjörsamlega úr lausu lofti gripnar og tell ég að hvorki ég né fjölskylda mín þurfum að standa undir öðru eins rógburði og áreiti.
megi síðan og hópurinn dafna vel og lengi.
Ásgeir
bitur dagsins
07. febrúar 2008 klukkan 09:28
Tilkynni ég hér með afsögn mína úr nad hópnum.
Ástæða afsagnarinnar er ólíðanlegt vald sem "einhver" meðlima hópsins hefur gefið sjálfum sér til að eyða út bloggskrifum félagsmanna.
Tel ég þar með allan grundvöll síðunnar hruninn.
Góðar stundir
sjs
bitur dagsins
07. febrúar 2008 klukkan 09:28
Góðan daginn nad-félagar, þar sem ekki fleiri framboð bárust til forseta nad.bloggar.is óska ég sjálfum mér hér með til hamingju með að vera orðinn fyrsti forseti nad.bloggar.is ég lýt ekki á vald mitt sem einhvert einráð heldur horfi ég á embættið sem tákn síðunar út á við og tell ég sjálfan mig geta þjónað því hlutverki vel á þessu kjörtímabili.
og hér með kýs ég sjálfan mig og vona eftir góðri kosningu.
með kveðju.
Ásgeir R. Harðarson
bitur dagsins
06. febrúar 2008 klukkan 23:28
Já ég veit að það er hálftími í fimmtudaginn, en ég blogga nú vegna tæknilegra orsaka.
En á fimmtudögum kemst ég í helgargírinn. Þá finnst mér oft gott að fara í góðra vina hópi og fá mér einn öl eða svo, og oftar en ekki hefur leiðin legið að hlýða á Hlyn nokkurn Ben. Nú í kvöld verður hann með tónleika ásamt Múgsefjun, sem margir spá að verði stórtækir á árinu, og Hraun, sem tapaði í Jólalagakeppni Rásar2. Tónleikarnir eru á Gauknum kl22.00 og kostar skítinn Jón forseta inn.
Bjórinn er góður og hérna er skemmtileg bjórauglýsing
Sjáumst í kvöld
Moritz
bitur dagsins
06. febrúar 2008 klukkan 22:45
Hér með býð ég Ásgeir Rúnar Harðarson mig fram í framboð til forseta nad.bloggar.is
verði ég kosinn forseti verður það mitt fyrsta verk að skipa í nefndir og störf, en fremur mun ég hafa það að forgangsverkefni að koma upp um atkvæða svindlið sem átti sér stað fyrr í dag.
stefnuskráin mín er stutt, málefnaleg en jafnframt mjög skýr. helstu atriði eru eftirfarandi.
1. koma á lýðræði á nad.bloggar.is og hrekja alla einræðisherra frá völdum.
2. stórefla menningarlegar umræður hér á síðunni.
3. finna síðunni pólitískan stöðuleika í samfélaginu.
4. gera mitt besta til að koma á friði á jörðu og draga úr gróðurhúsaáhrifum.
5. ná tökum á spillinguni sem kraumar undir niðri hér á síðunni.
6. að lokum koma á skipulagi á síðunni svo menn viti hvaða hlutverki þeir gegna innan nad hópsins.
Með framboðs og þakklætiskveðju til allra er hafa stutt mig í baráttunni.
Ásgeir R. Harðarson.
bitur dagsins
06. febrúar 2008 klukkan 12:02
Sögur hafa gengið fjöllunum hærra um forsetaframboð eins bloggar á nad síðunni. Allt svo framboð til forseta nad.bloggar.is.
Til að bregðast við þessum sögusögnum þá hef ég tekið þá einræðislegu ákvörðun að gerast kosningastjóri og því ákveðið að framboðsfrestur rennur út á miðnætti miðvikudaginn 7.02.2008.
Þá fer kosning fram á fimmtudaginn 08.02.2008 frá klukkan 10:00 að morgni til klukkan 22:00 að kvöldi.
Kosning fer þannig fram að hver bloggari hefur eitt atkvæði nema þeir sem eru yfir 90 kíló þeir hafa rétt til að greiða tvö atkvæði.
Menn greiða svo atkvæði með kommenti á blogginu, engar leynilegar kosningar hér.
Verði aðeins eitt framboð fer engin kosning fram og sá er leggur fram sitt framboð sjálfkjörinn.
Forseta nad.bloggar.is verður að sjálfsögðu einræðisherra yfir síðunni.
Framboð áhugasamra fara þannig fram að frambjóðendur gefa tilkynningu á blogginu með bloggfærslu áður en framboðsfrestur rennur út.
kv.
Þ.S.
bitur dagsins
06. febrúar 2008 klukkan 11:11
Mér finnst það alveg vera orðið tímabært að allri leynd sé lét af Ticket to ride stigum hvers og eins Nad-félaga. Að sjálfsögðu þarf að hafa sönnur á stigum sínum hvort sem þær eru á pappír eða frá öðrum meðlimum, einnig skal taka frá að um max score eða flest stig í einu spili (ekki heildar score eða meðaltal, þótt það væri nú gaman að hafa það með) þetta á við hvort sem spilað er á netinu eða í heimahúsi á normalt borðspil. ég mun svo sjá um að koma upp lista og styrkleika flokkum svo menn sjái hvar þeir standa.
kveðjur
Ásgeir
bitur dagsins