Könnun

Hversu mikið hlakkaru til uppskeruhátíðar KfHof á skalanum 9-13 þar sem 11 er mest

Auglýsing

Atburðarteljari

Afmælis dagbókin

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Nýtt upphaf - eða liðið undir lok?

20. október 2009 klukkan 23:15
Einn laugardag sátu nokkrir félagar saman í Kópavogi og horfðu á knattspyrnuleik. Kergja og rifrildi umluktu íbúðina og var hiti í mönnum, en þó allt í góðu. Fóru menn að velta því fyrir sér hvernig væri hægt að hafa skoðanaskipti oftar, og þá jafnvel þannig að félagar um allt land gætu tekið virkan þátt. Þá kom upp sú snilldar hugmynd að byrja með bloggsíðu og sagði einn félaganna: "Síðan getum við bara allir bloggað og rifist eins og við viljum!" Ekki er vitað til þess að hópur hafi áður verið saman með einu og sömu bloggsíðuna og ruddum við því brautina fyrir aðra s.s. kallarnir.is o.fl.

Nadið fór vel af stað. Skemmtileg skrif voru rituð og komu blogg og skoðanir úr öllum áttum. Síðan gerðist það að virknin fór dvínandi, þó svo að vinsældir síðunnar væru að aukast. Þá var tekið upp á því að nota síðuna í víðara samhengi og fóru menn að boða fótboltaæfingar og skrá meldingar á þær. Gafst það vel og hefur KfHof lifað góðu lífi í rúmt ár.

Með þessum brennandi fótboltaáhuga hafa önnur skrif allt að því horfið. Reynt hefur verið að lífga upp á þær og er mér minnistætt blogg eins nadara um Davíð Oddsson. Eftir fótboltaáhuga nadara og velunnara þeirra skrifaði einn nadari sem búsettur er austur á fjörðum eitthvað á þessa leið: Þessi síða er bara orðinn einhver helvítis fótboltasíða! Og var þetta laukrétt hjá honum.

Nú er spurningin, þar sem fótboltafélagið KfHof hefur stofnað sína síðu, hvort vettvangur þessarar sé fyrir bý. Eða er þetta upphafið af einhverju stórkostlegu?

Fyrir þá sem eru búnir að gleyma lykilorðinu og notendanafninu að þá er notendanafnið bitur og lykilorðið er nafnið á einum úr okkar heimabæ.

Ég hef allavega haft mjög gaman af þeim málefnalegu umræðum sem hér hafa farið fram og var einn þeirra sem var orðinn svolítið leiður á því að þessi síða var orðinn fótboltakladdi, þó það sé vissulega stórsniðugt og hafi reynst vel til síns brúks.

Eða eitthvað ..

Ég skora allavega á Sævar að koma með eitthvað blogg hérna fyrir helgi bjöss

Daníel Geir
bitur dagsins
Valdi
 
Dabbi er kóngurinn. Það er alveg á hreinu.
21. október 2009 klukkan 11:07
Margeir
 
Stundum er það nú líka svo að þeir kvarta mest sem hafa minst efni á því.

Síðasta blogg um annað en kfhof var skrifað 28. apríl af engum ómerkari manni en Súru-V.

Það er því spurning hvort þetta hafi ekki bara verið nauðsynlegt, þ.e. að draga boltan út af þessarri síðu þannig að hann "kæfi" ekki öll þau fjölmörgu blogg sem hér eru skrifuð :-)

Mönnum gefst nú færi á að blogga af vild án þess að vera í samkeppni við boltann.

Virðingafyllst,
Margeir
23. október 2009 klukkan 14:05
Ef maður bloggaði hérna, þá var komið inn boltablogg strax á eftir þannig að bloggið var ekki nýjasta bloggið og fór jafnvel framhjá mönnum. Betra að hafa þetta aðskilið. Það er rétt að þeir sem kvarta mest hafa oft ekki efni á því, enda er ég fátækur og versla í Bónus
23. október 2009 klukkan 14:24
Margeir
 
þú verslar sem sagt við þá sem komu þessu landi á hausinn.... frábært.
23. október 2009 klukkan 14:52
Ég versla þar sem er ódýrast. Skiptir mig litlu máli hver á hvaða sjoppu. En margir spá í það og er það þeirra mál
23. október 2009 klukkan 21:27
Margeir
 
jamm... enda hafa ævintýri baugsfjölskyldunnar ekki kostað okkur krónu... eða var það nokkuð :-)
26. október 2009 klukkan 11:56

Skrifa athugasemd